Fold fasteignasala ehf. var stofnuð af Viðari Böðvarssyni og fjölskyldu hans í ágúst árið 1994. Viðar hafði þá að baki fimmtán ára starfsreynslu í fasteignaviðskiptum og af rekstri fasteignasölu. Á þeim árum sem liðin eru frá því að fasteignasalan Fold hóf starfsemi hefur hún haslað sér völl á íslenskum fasteignamarkaði og hefur markaðshlutdeild fyrirtækisins vaxið jafnt og þétt. Rekstur nútíma fasteignasölu hefur á síðustu árum krafist fleira starfsfólks til að þjónusta viðskiptavini á traustan og fagmannlegan hátt. Á sama tíma hefur tölvuvæðing stóraukist svo og allt sem snýr að lagalegum kröfum sem gerðar eru til fasteignasala. Af þessu leiðir að sífellt eru gerðar meiri kröfur til fagkunnáttu starfsfólksins sem sinnir þessari þjónustu

Fasteignasala er í eðli sínu atvinnugrein sem nauðsynlegt er að byggi á traustum og öruggum vinnubrögðum því miklir hagsmunir eru í húfi hjá viðskiptavinum. Um leið þurfa fasteignasölur að vera framsæknar, opnar fyrir nýjungum í auglýsingum og kynningu eigna auk margs annars sem að viðskiptunum snýr. Traust og örugg þjónusta á öllum sviðum fasteignaviðskipta er aðalsmerki Foldar sem hefur og mun hafa fagmennsku í fyrirrúmi í stefnumótun sinni. Fold hefur frá upphafi verið leiðandi á sínu sviði með því að innleiða ýmsar nýjungar sem síðan hafa rutt sér til rúms í nútímalegri fasteignasölu. Þannig hefur fyrirtækið frá byrjun lagt áherslu á myndbirtingar í auglýsingum sínum og tekið þátt í þeirri tækniþróun sem tengist kynningu fasteigna á veraldarvefnum. Skýr verkaskipting er milli starfsmanna fasteignasölunnar sem vinna eftir gæðastjórnunarkerfi. Með tíðum fundarhöldum er leitast við að tryggja að allt ferli viðskiptanna gangi snuðrulaust fyrir sig og að staða hvers verkefnis sé ávallt skýr. Þessir þættir, það er tækni og skipulag, eiga án efa eftir að þróast og breytast mikið á næstu árum og mun Fold fasteignasala taka þátt í þeirri þróun og halda áfram að vera leiðandi í fasteignaviðskiptum á nýju árþúsundi sem hingað til.

Kt: 590794-2529
Vsk nr: 43299