Greiðslumat: Íbúðalánasjóður og aðrar lánastofnanir gera kröfu um greiðslumat v. lánveitinga. Þú getur framkvæmt bráðabirgðagreiðslumat á heimasíðu íbúðalánasjóðs á netinu og fengið aðstoð hjá starfsfólki Foldar-fasteignasölu við það. .

Kaupsamningsgreiðslur: Gættu þess að greiða allar greiðslur á gjalddaga. Seljanda er heimilt að reikna dráttarvexti frá þeim degi. Ef gjalddaga ber upp á helgidegi er fyrsti virki dagur þar á eftir greiðsludagur.

Yfirtaka lána: Yfirtaka lána er háð samþykki viðkomandi lánveitanda. Reglur um yfirtökur eru mismunandi en nauðsynlegt er að heimild til yfirtöku liggi fyrir þegar samningur er gerður.

Lántaka: Ef taka þarf lán vegna greiðslna er mikilvægt að gefa sér nægilegan tíma til að útvega gögn sem þarf að útvega og gæta að afgreiðslutíma bankans eða lánveitanda.

Aflýsing lána: Athugaðu vel rétt þinn til að halda eftir greiðslu, ef seljandi hefur ekki aflýst áhvílandi lánum á umsömdum degi.

Eignaréttur: Nauðsynlegt er að þinglýsa afsali til að öðlast endanlegan eignarrétt yfir þó svo kaupsamningi sé þinglýst.eigninni.

Greiðsla kostnaðarliða: Kaupandi greiðir stimpil og þinglýsingargjöld v. kaupsamn-ings og veðskuldabréfa við undirritun kaups-amnings. Einnig greiðir hann lántöku og umsýslugjald við undirritun kaupsamnings. Við undirritun afsals greiðir kaupandi þinglýsingargjald v. þinglýsingar afsals, hlutdeild kaupanda í fasteignagjöldum. Starfsfólk í skjalagerð veitir nánari upplýsingar um þessa kostnaðarliði.